Barnið iðkar nú öndunarhreyfingar í brjóstkassanum með reglulegu millibili.
Húð þess er orðin þéttari- ekki eins gegnsæ og áður.
Augu þess gera greinamun á myrkri og birtu. Það stendur að legið sé orðið eins og fótbolti, mér líður líka eins og ég sé með bolta fullan af vatni í maganum

Krílið virðist vera mest duglegt að sparka þegar ég er að borða og svo þegar ég slappa af fyrir framan sjónvarpið eða les.
Ég er aðeins farin að finna fyrir spörkum hátt á maganum, en annars sparkar það mest niður ennþá.
Mér líður annars mjög vel líkamlega, hef smá verki í mjóbakinu og aðeins í mjöðmunum, en það er nú alls ekkert alvarlegt.
Tilfinninga viðbrögðin mín geta samt verið svolítið ofsafengin meðað við venjulega, en það eru nú mest held ég bara hormónarnir alveg að láta heyra til sín.
Við leyfðum barninu að hlusta á tónlist með heyrnatólum um daginn og það brást skemmtilega við því, virtist finnast U2 skemmtilegastir
Ekkert nema gott með það
Annars er ég mest að skrifa þetta allt saman sem upprifjun fyrir mig, held að það gæti orðið gaman að lesa þetta seinna.
Kv bumbudís